17. maí 2009

"Til hamingju Ísland"

Nú gleðst maður í hjarta sínu yfir góðum árangri í Evróvision. Alltaf gaman þegar vel gengur en þetta var framan björtustu vonum mínum. Það er helst að frétta um helgina að ég fór í siglingarklúbbinn og var niður á strönd fyrrihluta sunnudagsins og hafði gaman að horfa á menn glíma við seglabáta í miklum vindi rétt fyrir utan ströndina.
Lítil eðla er garðinum og hefur hún meira að segja látið sig hafa það að koma inní stofu til okkar og fór undir sófa og var þar í nokkra stund áður en hún þorði að koma undan honum og skaust út í garð aftur.
Óli fór á bridge landsmót í Namibíu og náði 3ja sæti með sínum makker, og er hann að vonum kátur með það.

2 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Skellti inn mynd sem ég tók á föstudaginn í óvissuferðinni, hún er svo geggjuð og sýnir svo hvað veðrið er búið að vera dásamlegt hérna.

Kv
SG

Asgeir sagði...

ég sendi bara mynd þegar rignir hér