25. september 2009
Nýja Corollan
Fengum okkur nýjan bíl fyrir nokkrum dögum. Ég tók eftir því að það var margmenni við bíl þar sem ég var staddur í innkaupum og spurði hvað væri um að vera?? jú eigandinn af trésmiðmjunni ætlar að selja bílinn. Gott mig vantar bíl og talaði við hann og þetta hlutu að vera góð kaup því allir vildu endilega kaupa akkúrat þennan bíl.
Það kom svo á daginn því að þetta eru nánast vandræði það er verið að spurja í tíma og ótíma hvort við viljum ekki selja og ef við seljum þá verði að hafa samband við viðkomandi. Einn sagðist vera búinn að fara um allt með bróðir sinn í Walvis Bay og Swakopmund og það eru bara ekki svona bílar á lausu. Af hverju færðu þér ekki bara Bens fyir svipað verð, jú þeir eru flottir líka en það eru bara svo dýrir varahlutir í hann svo bilar hann meira. Láttu mig bara vita þegar þú selur jafnvel þótt það sé eftir nokkur ár. Ja....þvílíkt hitt þessi gamla Corolla enda með spoiler og filmum í rúðum algjört "low class hit". Kveðja, afi
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
2 ummæli:
Til hamingju með "nýja" bílinn... eru þið Óli aðal töffararnir í bænum???? hehehehehe ;)
Kv. elsta dóttirin.
Já til hamingu með þetta, er ekki til mynd af hinum bílnum svo hægt væri að bera töffarabílana saman?
Kveðja
Einmanna eiginkonan
Skrifa ummæli