skip to main |
skip to sidebar
Ýmislegt hefur sko á daga mína drifið síðan ég ritaði hérna inn síðast. Nú ég byrjaði í nýrri vinnu 13. ágúst, mér var boðin vinna við bókhald hjá góður fyrirtæki út í bæ. Ekki það að ég hafi verið að leita mér að vinnu, var bara þokkalega ánægð í skólanum nema rétt um hver mánaðarmót þegar launin komu inn þá fékk ég vægt til orða tekið nett áfall sem var svo alltaf búið að jafna sig þegar að næstu mánaðarmótum kom. Og er það nú aðalástæðan að ég skipti um vinnu, sakna nú samt fólksins í skólanum þau eru svo hress, er samt ekki að meina að fólkið á nýja staðnum sé það ekki heldur, á bara eftir að kynnast því betur. Ég var sem sagt í tveimum vinnum í 2 vikur og vá þvílík klikkun, þetta geri ég aldrei aftur, var við það að fara á KLEPP!!
Nú svo er hitt málið sem er eiginlega aðalmálið. Ég fékk pappírana undirritaða frá föður mínum yndislegum, tók smá tíma að fá hann til að skilja rétt minn í þessu máli, þ.e.a.s. gerast amerískur ríkisborgari. Er búin að gera margar tilraunir, hringja, senda honum póst og reyna að heimsækja hann, ekki það að hann eigi heima í næsta bæ, neinei karlinn býr í Flórída, ekki beint ódýrt að heimsækja hann. En eníveis þá komu þeir (pappírarnir) núna í ágúst og nú er ég búin að leggja þá inn hjá ameríska sendiráðinu með mynd sem by the way er ömurleg 5x5 og snúa beint fram eins og konan sagði og engin svipbrigði takk fyrir. Gæti verið gott innlegg í sakbendingu hjá CSI New York.
Hef leyfi til að sletta til helminga ef þetta fer í pirrurnar á ykkur, er nefnilega hálfur kani!
Þangað til næst..........amma kveður.
Skelltum okkur í kvöld á tónleika sem voru í boði Kaupþings, engin blankheit hjá þessum bönkum. Landsbankinn býður til veislu á morgun, svo það er nóg að gera í tónleikabransanum þessa helgina.
Komum þegar SSSÓL var að byrja og auðvitað var Helgi í banastuði, hoppandi og skoppandi um allt svið, fór meira að segja að klifra í grind sem var þarna, hef nú aldrei fundist hann flottur en hann getur sungið. Svo komu LUXOR drengirnir hans Einars Bárða, jú jú þeir eiga eflaust eftir að gera góða hluti, var samt ekki að fíla þá frekar en NILON sem komu á eftir þeim. MUGISON kom mest á óvart, helv... var maðurinn góður, er sko að fíla hann í ræmur, svolítið þungt hjá honum en hann er FLOTTUR. TODMOBIL standa alltaf fyrir sínu, hress og kraftmikið fólk sem kann sitt fag. GARÐAR THOR kom líka fram, hann er fínn en mér fannst hann bara ekki passa þarna inn á milli rokkarana. BUBBI er alltaf, ALLTAF FLOTTUR, skil ekkert í karlinum að fíla hann ekki.Nú rúsínan í pylsuendanum voru STUÐMENN, jú jú þeir komu en dísusss, eru þeir gjörsamlega búnir að skíta á bitann? Voru með 3 hljómborð og trommara sem var örugglega að drepast úr kulda í stuttbuxum og langsokkum, það vantar ekki að þeir eru alltaf í furðulegum búningum, það var sennilega það eina ágæta við þá í kvöld. Ætli þeir geti ekkert án söngkonu? Reyndu svo að hressa þetta aðeins við með þvi að láta BO Hall koma fram í skotapilsi, halló how low can you go???? Þeir stóðu ekki undir nafni í kvöld, og er ég örugglega ekki ein um þessa skoðun.
En þetta var samt alveg stórglæsilegt hjá Kaupþingi, þeir fluttu inn gólf til að leggja á fótboltavöllinn því ekki má hann eyðileggjast, risa skjár var settur upp og svo auðvitað var svakalegt hljóðkerfi. Ég má ekki gleyma veislustjóra kvöldsins honum PÁLI ÓSKARI, hann er ótrúlega góður gæi og stóð sig frábærlega vel, kann þetta sko alveg.
Verð nú bara að segja takk fyrir mig Kaupþing.
Svo er að sjá hvernig til tekst á morgun hjá Landsbankanum og Rás 2, en þá verða tónleikar á Miklatúni annað kvöld með fullt af tónlistarfólki, samt ekki sama fólki og var að spila í kvöld. Ætli maður skelli sér ekki í bæinn og hlýði á Eivör Páls, Ampop og fleiri flytjendur sem ég hef ekki mikið verið að hlusta á.
Þangað til næst............amma kveður.
Var að setja inn nýjar myndir frá Ameríku, endilega kíkið.
Til hamingju með daginn elskurnar nær og fjær.
Tíminn æðir hrein áfram, bara komið sumar áður en maður veit af. Ekki hefur góða veðrið verið að þvælast fyrir mér hérna á suðvesturhorninu. Rok og rigning út í eitt. En það styttist óðum í utanlandsferðina, aðeins 16 dagar til stefnu, ætla sko rétt að vona að þar verði gott veður. Aðeins 2 vinnudagar eftir hjá mér og svo er ég komin í "frí" ef frí skildi kalla. Er að fara í aðgerð á öxl nk. mánudag og verð frá vinnu í minnst 6 vikur. Má ekkert gera nema fara í sjúkraþjálfun.Ég kem ekki til með að blogga neitt í nokkrar vikur, kannski ég fái afa til að verða ritarann minn, aldrei að vita.Við Þórunn mágkona mín fórum í brúðkaup i gær. Ásgeir í veiði og Matti í Afganistan svo þeir misstu af stuðinu.
Gústa frænka og Sigurjón létu pússa sig saman í Fríkirkjunni í Hafnarfirði. Veislan var í Skútunni, þar hittum við fullt af ættingjum sem maður sér allt of sjaldan. T.d. Ellu frænku, Möttu frænku og Viktoríu frænku. Ella frænka hefur í mínum huga alltaf verið þessi eina sanna frænka, það var farið í heimsóknir til hennar og Sigga mannsins hennar í Barmahlíðina hérna í den og eins komu þau oft til ömmu og afa á Álfaskeiðið. Mikið hrikalega er hún lík ömmu Sigrúnu, verð endilega að muna eftir að fá myndir sendar frá Ellen svo ég get sett þær hérna inn. Svo var Matta frænka, hún býr á Borgarfirði Eystri og sést aldrei hérna fyrir sunnan, er álíka sjaldséð og hvítur hrafn. Gaman að hitta hana, hún hefur svo skemmtilegan húmor.
Gleymdi að segja hvað maturinn var hrikalega góður ummmmmmmm fæ sko vatn í munninn við tilhugsunina, brúðkaupstertan var líka mjög góð, er nú ekki mikið fyrir svona marzipantertur en þessi var sko GÓÐ. Nammi nammmmmmmm. Svo var bara tjúttað fram á rauða nótt, við Þórunn tókum nokkrar sveiflur á dansgólfinu og yfirgáfu svo stuðið um eitt leytið. Verðum nefnilega að vera í góðu formi í dag, erum að fara að hjálpa foreldrum Þórunnar að flytja dót austur á Hvolsvöll, en þar voru þau að kaupa sér hús sem þau ætla að nota sem sumarbústað. Verð að hætta núna því ég á að vera mætt í Breiðholtið eftir ca. 1/2 klst.Þangað til næst..........amma kveður.
Loksins komið sumar, hitinn í morgun kl. 06:00 var 8°c sem er auðvitað alveg gífurlega mikið. Svo er spáin góð fyrir daginn í dag, kannski maður skelli sér í hjólatúr eftir vinnu, ekki get ég lengur farið á hestbak þar sem hesturinn er farinn í sveitina, snökkt, snökkt :-( Eiginmaðurinn gerði stórkaup ársins í gær, fór og keypti 1 stk klesstann Volvo S80 sem hann ætlar að dunda sér við að gera upp þegar hann er ekki í vinnunni eða á hjólinu sínu. Þetta verður stórglæsilegur bíll þegar búið verður að laga hann. Ætli hann sé að senda mér dulin skilaboð með þessu??? Þarf að spyrja hann næst þegar ég hitti hann! Þangað til næst..........amma kveður.